Þegar krafa fer í innheimtu er greiðandi minntur á að standa skil á greiðslunni með útsendingu bréfa og með símhringingum. Motus vill mæta greiðendum þar sem þeim hentar best og býður því upp á samskipti með tölvupósti.
Fruminnheimta Motus felur í sér útsendingu innheimtuviðvörunar í nafni kröfuhafa, í samræmi við innheimtulög. Ef reikningur hefur ekki greiðst á eindaga tekur við milliinnheimta. Oftast tekur Motus við kröfum úr kröfupotti bankanna, en einnig er hægt að handskrá þær. Í milliinnheimtu er greiðandi áminntur með bréfum og hringingum, og hvattur til að hafa samband hafi viðkomandi athugasemdir við kröfuna eða vill semja.
Mál sem farið hafa í gegnum frum- og milliinnheimtu hjá Motus án árangurs er alla jafna vísað áfram í löginnheimtu til samstarfsaðila okkar, Lögheimtunnar ehf. Hjá Lögheimtunni starfa reyndir lögmanna og aðrir sérfræðinga sem tryggja faglega meðferð innheimtumála og er þjónustan þannig hluti af þeirri heildarlausn sem Motus býður viðskiptavinum sínum í kröfustýringu.
Í kröfuvakt Motus vinnum við á markvissan hátt að því að innheimta kröfur, sér í lagi lágar upphæðir, sem hafa farið árangurslaust í gegnum milliinnheimtu eða löginnheimtu og væru annars afskrifaðar. Auk þess að vakta kröfurnar sjáum við um alla umsýslu tengda kröfunum, eins og að senda ítrekanir, greiðsludreifingu, veita fresti og meta andmæli.
Motus er samstarfsaðili Intrum, sem er leiðandi fyrirtæki í Evrópu á sviði kröfustýringar. Þekking Intrum á ferli og löggjöf í hverju landi tryggir markvissari innheimtu og lágmarkar kostnað. Við önnumst öll samskipti við erlenda aðila og upplýsum þig um framgang málsins. Sömuleiðis getum við aðstoðað við innheimtu virðisaukaskatts af reikningum vegna ferðalaga og kaupa á þjónustu erlendis.
„Frábær þjónusta er það sem einkennir Motus einna helst í mínum huga. Við þurfum lítið að gera eftir að við höfum keyrt reikninga okkar megin. Þetta gengur algjörlega eins og smurð vél. Þjónustan er persónuleg og sniðin að rekstri fyrirtækisins. Starfsfólkið spilar þarna stóran part og mikil þekking býr þar að baki.“
Anna Lára Sigurðardóttir, forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs Creditinfo
Motus býður upp á tengingar við öll helstu bókhaldskerfi. Þannig má senda kröfuskrár og lesa greiðsluskrár beint í bókhaldskerfi þíns fyrirtækis og framkvæma helstu aðgerðir eins og fresta innheimtuaðgerðum, tilkynna um innborgun eða eiga örugg samskipti.
Ef krafa er ekki greidd á eindaga fer málið í fruminnheimtu þar sem skuldara er send tilkynning um að sé krafan ekki greidd innan tiltekins frests þá megi vænta frekari aðgerða.
Fáist krafa ekki greidd þrátt fyrir innheimtuviðvörun fer hún oftast í milliinnheimtu, sem felst að jafnaði í allt að þremur tilkynningum og símtali.
Löginnheimta felst í aðgerðum samkvæmt úrræðum réttarfarslaga, til að mynda málshöfðun fyrir dómi og fullnustugerðum hjá sýslumanna. Löginnheimta er framkvæmd af lögmönnum og um hana fer skv. lögmannalögum nr. 77/1998.