Blogg

Kynning á viðskiptavef innheimtuþjónustu

Viðskiptavinir Motus og Lögheimtunnar hafa aðgang að viðskiptavefnum þar sem hægt er að fylgjast með framgangi mála í innheimtuþjónustu. Við höfum tekið saman kynningu varðandi notkun vefsins.

Efnisyfirlit:

Yfirsýn yfir stöðu málaMál í innheimtuGreiðsluyfirlitSækja greiðsluskrárInnskráningTilkynningar


 

Yfirsýn yfir stöðu mál

Á forsíðu viðskiptavefsins er samandregið yfirlit yfir fjölda krafna sem félagið er með í innheimtu og samtals fjárhæð eftir innheimtustigum. Einnig sérðu ef þín bíða skilaboð og ef þú þarft að samþykkja mál í löginnheimtu. Ekki þarf að samþykkja mál í kröfuvakt heldur flytjast þau sjálfkrafa.

Á síðunni Mál í innheimtu > Öll innheimtumál er yfirlit yfir öll mál sem félagið þitt er með í innheimtu. Hægt er að afmarka listann eftir ýmsum skilyrðum og bæta inn upplýsingum um hverja kröfu.

Viltu fá tölvupóst um að þín bíði skilaboð á vefnum? Þú hefur val um að fá tilkynningu þegar þín bíða skilaboð eða ef taka þarf afstöðu í máli. Sjá leiðbeiningar um uppsetningu tilkynninga.

 

Mál í innheimtu

Það eru tvær leiðir til að skoða innheimtumál á viðskiptavefnum: með því að nota leitina eða að velja það af síðunni Í innheimtu > Öll mál í innheimtu. Hægt er að sjá upplýsingar um þær aðgerðir sem hafa átt sér stað vegna málsins, hvað sé framundan, innborganir og fleira. Einnig er hægt að framkvæma aðgerðir eins og að fresta máli, afturkalla eða tilkynna innborgun.

 

Uppgjör

Hægt er að nálgast upplýsingar um greiðslur vegna innheimtumála á viðskiptavefnum undir Uppgjör Motus fyrir mál í frum- og milliinnheimtu og kröfuvakt, en mál í lögfræðiinnheimtu undir Uppgjör Lögheimtan.

Greiðsluyfirlit – Að sjá tengsl milli innheimtumála og greiðslna

Viðskiptavinir Motus hafa aðgang að yfirliti sem sýnir samantekt á greiðslum fyrir hvern dag ásamt upplýsingum um hvaða málum þær tengjast og frá hvaða greiðanda. Einnig er hægt að skoða T-reikning þar sem debet og kredit dálkur eru sýndir sérstaklega ásamt samtölu. Viðskiptavinir Motus eru ýmist skuldajafnaðir eða ekki og er sýn þeirra því mismunandi þegar kemur að t-reikningum.

 

Greiðsluskrár – Að lesa inn gögn í bókhaldskerfi

Yfirlitið sýnir upplýsingar um daglegar greiðslur ásamt möguleika á að sækja greiðsluskrárnar til að lesa inn í bókhaldskerfi.

 

Hreyfingaryfirlit

Á hreyfingaryfirliti er hægt að nálgast bókhaldshreyfingar kröfuhafa.

 


 

Innskráning

Hægt er að skrá sig inn á viðskiptavefinn með notendanafni/lykilorði sem þú ættir að hafa fengið í tölvupósti. Ekki er ætlast til þess að starfsmenn deili aðgangi, heldur skal stofna notanda fyrir hvern og einn, og er það án aukakostnaður.

 

 

Til að tengja rafræn skilríki við notandann þinn að vefnum:

  • (1) Þú innskráir þig á viðskiptavefinn með notendnanafni og lykilorði sem þú fékkst sent.
  • (2) Veldu notandann þinn sem er efst í hægra horninu á vefnum og svo Stillingar úr valmyndinni sem opnast.
  • (3) Inn á síðunni Stillingar skaltu slá inn kennitöluna þína og vista. Þá ættir þú framvegis að geta innskráð þig með rafrænum skilríkjum.

 

Tilkynningar

Notendur að viðskiptavef Motus geta fengið sendar tilkynningar þegar þeirra bíða skilaboð á vefnum. Til að virkja þennan möguleika þarf að gera eftirfarandi:

  • 1) Veldu notandann þinn sem er efst í hægra horni síðunnar og því næst Stillingar úr valmyndinni sem opnast.
  • 2) Skráðu netfangið þitt.
  • 3) Veldu Umsjónarsíður úr valmyndinni vinstra megin og því næst Tilkynningastillingar.
  • 4)Þá getur þú valið hvaða tilkynningar þú vilt fá og hvenær.

 

Ef þú vilt fá tölvupóst með tilkynningu um að beðið sé eftir samþykki þínu fyrir löginnheimtu þá vinsamlega sendu beiðni á motus@motus.is.